Hvað á ég að gera? Þú getur haft samband við VBS fjárfestingarbanka og við aðstoðum þig við kaup á sjóðum. Lágmarksfjárfesting er 100.000 kr.
Hvaða sjóðir eru í boði? Hægt er að nálgast upplýsingar um hvern og einn sjóð hér á vefnum eða þú getur einnig komið til VBS fjárfestingarbanka og fengið nánari upplýsingar.
Í hvaða mynt eru sjóðirnir? Grunnmyntir sjóðanna eru annað hvort Evrur eða Dollarar. Fjárfestar geta þrátt fyrir það valið að kaupa sjóðina í fleiri gjaldmiðlum.
Þóknun og greiðslur: Þóknun fyrir kaup í Carnegie sjóðum er 1,5%. Söluþóknun er engin eftir 1 árs eignarhaldstíma.
Ef eignarhaldstíminn er skemur en 1 ár er sérstök þóknun tekin þó aldrei hærri en 1%.
Greiðslur fyrir kaupum í Carnegie sjóðum skulu fara inn á reikning VBS fjárfestingarbanka hf.
Uppgjörstími
Uppgjörstími viðskipta er 3-4 dagar en vegna óskilvirkni á gjaldeyrismörkuðum þá getur uppgjör á erlendum viðskiptum tafist um einhverja daga.
|