VBS fjárfestingarbanki hf. var tekinn til slitameðferðar 9. apríl 2010 með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstaréttarlögmennirnir Hróbjartur Jónatansson og Þórey S. Þórðardóttir og Friðbjörn Björnsson löggiltur endurskoðandi voru skipuð til starfa í slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. Framkvæmdastjóri slitastjórnar VBS fjárfestingarbanka hf. er Þorsteinn Ólafs.

Carnegie Austur-Evrópusjóður
Sjóðsstjóri: Carnegie Asset Management, Copenhagen
Stofndagur: 1 apríl, 1998
Grunnmynt: USD
Lágmarks fjárfesting: USD 1,000
Árleg umsýsluþóknun: 2,20%
Viðskipti: Daglega
Viðmiðunarvísitala: MSCI East Index
ISIN: LU0086737482

Austur-Evrópusjóður Carnegie er sá sjóður sem gefið hefur hvað besta ávöxtun undanfarin ár. Fjárfestingarstefna sjóðsins er að ná góðri langtímaávöxtun og dreifingu verðbréfaeignar með því að fjárfesta að mestu leiti í skráðum hlutabréfum í mið- og austur Evrópu ásamt fyrrum aðildarríkjum Sovétríkjanna. Þessir markaðir eru tiltölulega nýjir og bjóða því upp á mikla vaxtarmöguleika. Gera má ráð fyrir töluverðum sveiflum í ávöxtun sjóðsins en fyrirtaks ávöxtun yfir lengri tíma.